Bolvíkingar í úrslitakeppnina eftir 20 ára biđ
Leiknismenn enduðu í 2. sæti í A-riðli 2. deildarinnar með 11 sigra í 16 leikjum. Liðið féll úr 1. deildinni síðastliðið vor eftir eins árs veru en hafði árin þar á undan verið meðal bestu liðanna í 2. deildinni.
Bolvíkingar eru hins vegar að komast í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í heil 20 ár, en þeir komust síðast þangað árið 1992 og gerðu sér þá lítið fyrir og unnu deildina. Tímabilið eftir lék liðið í 1. deildinni en fljótlega eftir það færðist öll starfsemin undir merki KFÍ. Körfuknattleiksdeildin var svo endurvakin í byrjun aldarinnar en náði þó ekki að komast áfram í úrslitakeppnina þau 5 ár (2000-2005) sem hún var virk. Deildin var svo endurvakin enn og aftur sumarið 2010 og var einum sigurleik frá því að komast í úrslitakeppnina vorið eftir.
Í ár hefur gengi liðsins verið með ágætum og draumurinn um sæti í úrslitakeppninni orðinn að veruleika. Stefnan er að sjálfsögðu sett á úrslitaleikinn sjálfan sem fer fram í Laugardalshöllinni þann 14. mars og næsta víst að hausar fá að fjúka náist það markmið ekki.
8. liða úrslitin: Heima - Gestir (Sæti/riðill)
Augnablik (1b) - Víkingur Ólafsvík (4a)* - Kórinn, Kópavogi
Mostri (1a) - Fram/KV (4b)** - Fjárhúsið, Stykkishólmi
Leiknir (2a) - Bolungarvík (3b) - Austurberg, Reykjavík
Reynir S. (2b) - HK (3b)* - Sandgerði
*Patrekur endaði í 3. sæti A-riðils en fyrirgerði rétti sínum til þáttöku í úrslitakeppninni eftir að þeir gáfu útileik sinn á móti ÍBV. HK taldist því sem þriðja liðið úr A-riðli inn í úrslitakeppnina og Víkingur frá Ólafsvík sem það fjórða.
**Fram á eftir einn leik á móti Áftanesi sem fram fer á morgun. Sigri þeir í þeim leik fara þeir í úrslitakeppnina en ef þeir tapa þá fer KV áfram.



Meira